hæ hæ ég veit að það er langt síðan ég lét heyra í mér síðast en svona er þetta. (",) Nú síðan er þetta klassíska en það er yfirlit yfir það sem komið er af vikunni og eitthvað smá sem var um jólin og áramótin.
Jæja ættli við byrjum þá ekki á jólafríinu,jólum og áramótum, en þetta var það helsta:
Nú jólafríið hófst þegar öll prófin voru búinn eins og hjá flestum.Mér til mikils léttis þá fékk ég að vita þann 20 des að ég hafði ekki fallið í neinu ekki einu sinni stærðfræði en það var allveg búist við því enda hefur stærðfræði ekki verið mín sterkasta hlið síðan svona í 4.bekk.
Nú síðan á Þorláksmessu þá fórum við Ása að bera út jólakort fyrir mömmu. Fólk var að versla jólagjafir á síðustu stundu dæmi var það að Gummi skildi mömmu eftir í pössun hjá Ástu á meðan hann fór og verslaði jólagjöfina hennar. Ég veit ekki hvað mömmu fannst um þetta en hvað um það. Við fórum heim mjög fljótlega eftir það og höfðum það gott það sem eftir var dagsins.
Síðan er það hápunktur jólana eða það vilja margir meina en það er sjálfur aðfangadagur. Ég man eigilega ekki hvað ég gerði fyrri hlutan af deginum en það sem skeði uppúr 5 og það sem eftir var kvöldsins var eitthvað á þessa leið.
Mamma sagði mér að fara að fara í sturtu um fimmleytið því að næst myndi Gummi fara þegar hann kæmi inn og síðast mamma en ég skellti mér í svarta kjólinn og skóna sem að mamma keypti handa mér í skagfyrðingabúð. Síðan fór ég að horfa á sjónvarpið því nú var maður að bíða eftir Gummi kæmi inn og síðan fór ég að hjálpa til við að týna á borðið og þetta sem að fylgir. Allt hafðist að lokum allir komust í sturtu og í skárri fötin áður en að klukkan var 6. Síðan borðuðum við matinn sem að mamma hafði haft mikið fyrir að elda enda var nóg að borða og maturinn var góður. Eftir var síðan sest í sófan og hófst þá útdeilingar á jólagjöfum. Eftir jólagjafaskiptinguna þá var horft aðeins á sjónvarpið og skoðað jólagjafir og síðan var farið til Jóns og Þóru og hittum þar fullt af ættingjunum hans Gumma. Uppúr hálf tólf þá var farið í miðnætur messuna og síðan var haldið heim á leið að henni lokinni.
Jóladagurinn: Nú það var möndlugrautur í matin og síðan fórum við í kaffiboð eða eitthvað svoleiðis, til Ástu en eftir að ég hafði verið búin að stoppa þarna einhvern tíma fór ég og hitti Ásu en var nóg til að tala um eins og endranær. Síðan var kvöldmatur og allt þetta hefðbundna.
Síðan var s.s ekki mikið um að vera þar til á Gamlárskvöld en þá var farið til Ástu í matarboð en við vorum þar til hálf 1 um kvöldið og síðan var farið heim.
Skólinn byrjaði svo aftur núna þann 7 jan og það byrjaði ekki lukkulega sá dagur því að það átti að kenna eftir 2 kennsludögum svo skrítið sem að er en þetta fattaði ég ekki og þegar ég kom aftur í skólan þegar ég hélt að það átti að vera danska þá fékk ég útskýringu á þessu en það lagaðist en ég mætti í annarsí flesta tíma nema í sálarfræði því að ég var að láta gera töflubreytingar.Það virðsit sem að ég þurfi alltaf að laga töfluna mína því að þegar ég var að byrja í skólanum þá þurfti ég að sleppa íslensku til að geta tekið íþróttafræði en það er mikilvægt að taka þetta sem fyrst því að þetta er þannig fag að það eru ekkert margir sem að taka þessa áfanga því betra að taka þá strax. En viti menn núna þarf ég að sleppa enskunni til að geta tekið íþróttafræðina en ég er náttúrulega búin að bæta við mig Félags-og Sálarfræði til viðbótar og líka UTN. Þó er einn ljós punktur en það er mögulegt að ég geti tekið Enskuna utanskóla og þá náttúrulega þarf ég ekki að geyma hana. Það nýjast er sennilega það að þegar ég ættlaði að slökkva á símanum mínum í morgun þá flaug ég 2 á hausinn en það stafaði af því að ég var með náladofa í öðrum fætinum. Annars er það ekkert fleira í bili læt heyra í mér næst þegar eitthvað áhugavert skeður.